Hækkanir samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga, dregnar úr frumtexta samninganna og birtar sem opin gögn.
Gögnin eru unnin úr heildarskrá ríkissáttasemjara ásamt skjölum af vefjum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda. Hver hækkun ber beina tilvitnun í frumtextann svo hægt sé að sannreyna hana.
Vísitalan er ekki launavísitala. Hún leggur saman þær
hækkanir sem tókst að finna í samningum og er aðeins marktæk fyrir félög þar
sem reiturinn heilleiki er samfelld.
Samfella er mæld aftur á bak frá nýjustu mælingu að fyrsta rofi, svo gömul
göt ógilda ekki röð sem hefur verið samfelld í tvo áratugi.
samfelld_fra segir frá hvaða degi hún gildir og
visitala_samfella er keðjuð þaðan — það er talan sem á að nota.
Samanburður stéttarfélaga —
veldu eitt eða fleiri félög og berðu þau saman á sameiginlegum tímaás, með
valkvæmum sameiginlegum grunni og launavísitölu og vísitölu neysluverðs
Hagstofunnar sem viðmiðum.
Eyðuskráning — hjálpaðu til við að fylla
í eyðurnar: skráðu hækkun sem vantar. Hver skráning er yfirfarin áður en hún fer í gögnin.
Hækkanir félags — allar hækkanir
eins félags í lista, með bilum þar sem meira en ár líður milli hækkana.
Einfalt sýnidæmi — minnsta dæmið um að sækja gögnin
úr vafra.
| Slóð | Inntak |
|---|---|
api/v1/index.json | yfirlit, útgáfa og fyrirvarar |
api/v1/felog.json | öll félög með auðkenni og heilleika |
api/v1/felog/{audkenni}.json | tímaröð eins félags |
api/v1/haekkanir.json | allar hækkanir |
api/v1/haekkanir/{ar}.json | hækkanir eins árs |
api/v1/taxtahaekkanir.json | hækkanir mældar beint úr launatöflum |
api/v1/launavisitala/… | launavísitala Hagstofunnar |
api/v1/visitala_neysluverds.json | vísitala neysluverðs Hagstofunnar, mánaðarleg frá maí 1988 |
const grunnur = "https://kjarasamningar.kristinn.eu/api/v1";
// Félög með samfellda röð
const { felog } = await fetch(`${grunnur}/felog.json`).then(r => r.json());
const nothaef = felog.filter(f => f.heilleiki === "samfelld");
// Tímaröð VR: aðalsamningurinn (við SA)
const vr = await fetch(`${grunnur}/felog/vr.json`).then(r => r.json());
for (const h of vr.haekkanir) {
console.log(h.dagsetning, h.prosenta, h.visitala);
}
// Aðrir samningar VR, hver keðjaður sér - aldrei lagðir saman
for (const s of vr.samningar) {
console.log(s.motadili_heiti, s.adalsamningur, s.haekkanir.length);
}
Félag semur oft við marga mótaðila samtímis: aðalkjarasamning og sérsamninga við einstök fyrirtæki og stofnanir. Hækkanir ólíkra samninga má ekki leggja saman, svo hver samningslína (félag × mótaðili) er keðjuð sér.
haekkanir og tölur félagsins (heilleiki,
samfelld_fra …) eiga við aðalsamninginn
(adalsamningur).samningar geymir allar samningslínur félagsins, hver með eigin
haekkanir, samfellu og vísitölu.erft_fra).ur_serssamningi). Aðrar hækkanir hans standa sem sérsamningur.| Reitur | Lýsing |
|---|---|
dagsetning | hvenær hækkunin tók gildi |
prosenta | hækkun í prósentum, null ef eingöngu var samið um krónutölu |
kronur | hækkun í krónum |
a_vid | við hvað hækkunin miðast: kauptaxtar, launatafla, almenn laun … |
visitala | keðjuð vísitala, grunnur 100 við fyrstu mælingu félagsins |
bil_manudir | mánuðir frá síðustu mælingu — löng bil þýða að hækkanir vanti |
heilleiki | samfelld, eyður eða of fáir punktar — lýsir samfellda kaflanum |
samfelld_fra | hvenær samfelldi kaflinn hefst |
visitala_samfella | vísitala keðjuð frá samfelld_fra — talan sem á að nota |
innan_samfellu | 1 ef línan er innan samfellda kaflans |
i_kedju | 0 ef hækkunin tilheyrir líklega hliðarsamningi og er ekki keðjuð |
tilvitnun | textabúturinn úr samningnum, til sannreyningar |
slod | slóð á samninginn sjálfan (PDF) sem hækkunin var lesin úr |
motadili | auðkenni mótaðila samningsins, t.d. sa, riki, fy-siminn |
motadili_heiti | heiti mótaðilans |
adalsamningur | 1 ef hækkunin tilheyrir aðalsamningi félagsins |
erft_fra | landssambandið sem samdi um hækkunina fyrir aðildarfélagið, t.d. SGS |
ur_serssamningi | fyrirtækjasamningurinn sem staðfesti almenna hækkun þar sem aðalsamninginn vantaði hana |
Hækkanir eru mældar tvisvar með ólíkum aðferðum. haekkanir eru
lesnar úr texta samninganna. taxtahaekkanir eru reiknaðar með því
að bera sama launaflokk og þrep saman milli dagsettra launataflna — án þess að
lesa eitt einasta orð.
Taflan mælist oft hærri, og það er ekki ósamræmi. Þar sem samið var um „3,50% eða 23.750 kr.“ ræður krónutalan á lægstu töxtunum og mælist sem 5,58%. Textinn gefur umsamda formúlu, taflan raunverulega útkomu.
artal_stada segir til um hvert tilvik.